logo
Þú þarft að skrá þig inn til að fá aðgang að efni síðunnar




Friday 27th of January 2012

Kvef, hor og sleeeeen! Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Ágústa Ringsted   
Föstudagur, 23. Janúar 2009 00:19

Við erum kvefuð mæðginin og höfum haldið okkur heima síðustu daga. Matthías átti að hitta dagmömmuna sína í morgun en við komumst ekki því kúturinn fékk smá hita. Hann er samt ótrúlega hress þó hann kúgist reglulega þegar hann hóstar og stundum ælir hann líka:( Hann var rétt nýbúinn að jafna sig á kvefinu sem hann fékk í byrjun janúar. Við höfum það bara gott hérna heima. Það er eins gott að njóta þess, því eftir viku þarf ég að byrja að vinna aftur. ÉG HLAKKA EKKI TIL. Skilja Matthías eftir hjá dagmömmu og fara að vinna í skítnum. Maður verður víst bara að sætta sig við það, ég er þó heppin að hafa vinnu. Ég kem þó heim með egg og skyr, það er búbót!

Sævar skrapp á sjóinn um daginn og var í burtu í viku, hans var mikið saknað og Matthías brosti hringinn þegar hann kom heim aftur. Svo er það bara skólinn hjá honum. Það er eins gott að við eigum svona flott skipulagningardagatal, því nú verður mikið að gera hjá okkur:) 

Ég setti inn nokkrar nýjar myndir. Hafið það gott og verið góð við hvort annað:)

Síðast uppfært Sunnudagur, 25. Janúar 2009 12:18
 
Kominn tími á fréttir!!! Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Ágústa Ringsted   
Föstudagur, 21. Nóvember 2008 00:23

Ég kenni Sævari alfarið um fréttaleysið. Hann fer sko alltaf með tölvuna í skólann og er að lesa undir próf. svo tölvan kemur ekki heim fyrr en seint og síðar meir á kvöldinEmbarassed Hann verður víst að lesa ef hann ætlar að verða svona lögfræðingur.

Annars er allt gott að frétta, Matthías er alltaf jafn hress og kátur. Að vísu er hann að fá tennur í efri góm núna svo hann bítur í allt sem fyrir verður og er svolítið órólegur í svefninum, en það er aldrei langt í brosið. Hann er farinn að sýna listir sínar, hvað hann er stór og kann að klappa, alveg að springa úr monti. Hann þeysist um alla íbúð í göngugrindinni sinni, er búinn að ná í myndarammana í gluggakistunni og tókst loksins að opna eldhússkúffuna. Það er þvílíkt sport, hann svoleiðis hoppar af kæti þegar honum tekst að opna skúffuna. Það má ekki opna skáp eða skúffu á heimilinu, þá er hann mættur eins og stormsveipur. Hér verða allar hillur tómar þegar hann kemst sjálfur af stað, hann virðist ætla að verða jafn iðinn og foreldrarnir voru á sama aldriSurprised

Ég hef verið að reyna að setja inn myndbönd en það hefur ekki gengið, þarf að læra betur á þetta, er svolítið tölvuheftFrown Þið verðið bara að láta ykkur nægja myndirnar, hann er alveg jafn sætur á þeimLaughing

Síðast uppfært Föstudagur, 21. Nóvember 2008 00:26
 
Nýjar myndir! Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Ágústa Ringsted   
Miðvikudagur, 05. Nóvember 2008 16:42
Setti inn nokkrar myndir af kútnum. Skrifa seinna.
 
Helgarferð Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Ágústa Ringsted   
Sunnudagur, 19. Október 2008 23:03
Já við skruppum litla fjölskyldan til Akureyrar um helgina þar sem Sævar átti frí í skólanum. Við ókum af stað á fimmtudaginn og komum heim í kvöld. Við höfðum það rosalega gott um helgina, gistum hjá Auði ömmu sem raðaði ofan í okkur mat alla helginaEmbarassed Fórum út að borða á Strikið með Írisi og Róberti Mána, röltum í miðbænum, fórum á kaffihús og heimsóttum Lillu frænku. Á laugardaginn fórum við að skoða jólahúsið svo nú er ég komin í jólaskap, Sævari finnst það nú vera alltof snemmt og fussar bara yfir því ( hr. Ebenezer Scrooge). Ég hlusta ekkert á svoleiðis vitleysu.Tongue out Matthías Máni sofnaði alveg dauðþreyttur eftir ferðalagið kl. 8 í kvöld, enda búinn að vaka frameftir alla helgina. Setti inn myndir frá helginni.
Síðast uppfært Sunnudagur, 19. Október 2008 23:07
 
Myndir teknar í október komnar inn. Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Ágústa Ringsted   
Þriðjudagur, 14. Október 2008 23:26

Hann Matthías Máni er mikill sprellikarl, eins og sést á myndunum. Hann fer aldrei í fýlu, enda dettur enginn í þunglyndi á þessu heimili í kreppunni, ekki með svona gleðigjafaSmile Hann er loksins kominn með tvær tönnslur í neðri góm og er stöðugt að reka útúr sér tunguna, svo sendir hann manni æðisleg gómabros þegar hann klæjar í góminn. Gæti barasta étið hann.

Vona að myndirnar gleðji ykkur líkaWink

Síðast uppfært Þriðjudagur, 14. Október 2008 23:27
 
« FyrstaFyrri123NæstaSíðasta »

Síða 1 af 3
0210- 001 11.jpg.jpg
Ég elska....
 

Heimsóknir

mod_vvisit_counterÍ dag48
mod_vvisit_counterAlls34257

Stjórnað af Joomla!. Designed by: Free Joomla Theme, YourSite review. Valid XHTML and CSS.